Minn skrítni haus
Ég um mig frá mér til mín
15.05.2006 15:11:05 / kryr

Flutningar

Í tilefni sumars er ég flutt á kryr.bloggar.is ,,,,,,,,,,,,,, miklu skemmtilegra !

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 10:19:15 / kryr

hamingjan ein

Prófin búin ,,,, hamingjan ein ,, ég er hamingjusömust í heimi ,,,, því ég veit ég náði stærðfræðiprófinu ,,, veit samt ekki hvað ég fékk,, en ég og Vilborg hittum kennarann okkar í gær á bílastæðinu í Kringlunni ,,, og eftir stutta orðsendingu frá kennaranum hoppuðum við og föðmuðumst eins og illagerðar gelgjur og fórum næstum að skæla,,,, og mér gekk vel í öllum öðrum prófum og mgöf vel í íslensku og sögu,,,, nú er skólinn búinn ,,, og þrjár vikur í næstu törn,,,,

ég er svo ánægð og montin og ætla vera það þangað til ég fæ einkunnirnar í næstu viku

góða helgi


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 10:38:26 / kryr

lítill heimur

góðann daginn ...

Prófin alvega að verða búin bráðum bara 3 dagar eftir en bara 2 próf,,,, búið að ganga ágætlega,,, held ég ,, nema kannski stærðfræðiprófið, en þar sat ég í tvo tíma ,, reiknaði og reiknaði og svo það sem ég kunni ekki hugsaði ég góðar tölur og setti í eyðuna ,,,, kennarinn kom til mín og sagði við mig í prófinu,, þú kannt þetta alveg ,, og ég var eiginlega bara nei ég man ekki alveg ,, er ekki viss ,,, og hann sagði skrifaðu þá bara eitthvað ! og ég gerði það og skilaði fullreiknuðu blaði ,, en hversu mikið var rétt ,,, það kemur í ljós í næstu viku ,,, félagsfræðiprófið í gær gekk bara ágætlega fannst mér,,, enda búin að læra og læra ,, náði því alveg svo er bara sögupróf og landafræðipróf eftir,,,, er búin að sitja niðrá austurvelli og kaffibrennslunni til skiptis alla vikuna og ekki laust við að ég sé að verða komin með lit í andlitið,,,, en var að sjálfsögðu að læra ,, ekki í sólbaði ! ,, alveg satt , Björ , Vilborg og Heiðdís og Hjörsís erum búnar að vera mjög duglegar,,,, svo kemst maður að því hvað heimurinn er lítill ,,, því Heiðdís er búin að vera tala um nýlega fundinn kærastann sinn ,,,, sem ég hitti svo í fyrradag ,, þá var það skólafélagi minn frá sauðárkróki sem djammaði mikið með okkur,,, gaman að því og svo kom í ljós að Björk þekkti fullt af fólki sem ég þekkti meðal annars Ármann og Sigrúnu,,,, ! var að vinna með Sigrúnu í samkaupum !!!!! hélt égmyndi grenja úr mér agunu,,,,,,, Svo er bara verið á leið niðrí bæ að læra meira í dag ,,,,,, og sleikja sólina,,,,,,

bið að heilsa ......


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 09:36:40 / kryr

stærðfræðipróf

Helgin ; stærðfræði stærðfræði stærðfræði stærðfræði 

dagurinn í dag ; próf í stærðfræði

eftir kl 1300 í dag : Austurvöllur að læra með Vilborgu fyirir félagsfræðipróf

eftir kl 2000 í dag: Vilborg, Anna og Björk koma í félagsfræðiumræðuborðaköku kvöld og við förum yfir lokapunktanna fyrir félagsfræðiprófið

á morgun kl 1100 : próf í félagsfræði.

Miðvikudagur : ekkert próf

Fimmtudagur : sögupróf

Föstudagur : landafræðipróf

Föstudagur kl 1100 ,,,, búin í prófum

Föstudagur kl 2100 : bjór í boði xb á pravda !


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 15:33:49 / kryr

ekkert í dag

Það er nú ekki mikið að gerast hér á þessum bæ,,,, fór reyndar til læknis sem mældi blóðþrýstingin og tylkinnit mér að ég væri ekki að drepast ,,,, sem var mikill léttir,,,, en hins vegar held ég að hann hafa haft rangt fyrir sér því ég er að drepast ,,, úr leiðindum, yfir stærðfræðinni sem er að gera mig hárlausa á höfðinu og einnig er ég að verða búin með neðri varirnar á mér því einhverrahluta vegna naga é gþær þegar ég verð stressuð,,,, en já hummmm við Eysteinn erum að bíða eftir að Þóra frænka hans komi og sækji hann þvi pabbi hans var svo þreyttur að hann treysti sér ekki til að ná í hann, því hann var búin að vinna kl 4 í nótt og treystir sér ekki að keyra fyrr en á morgun víst ! svoleiðis er það nú ,, þannig Eysteinn ætlar að fara með frænku sinni í sveitina og mjólka beljurnar,,,, Annars er drengurinn stórslasaður á hægri fót,, flaug á hausinn í eltingaleik í gær og á sandkassa og er nú með risastórann marblett yfir allt lærið niðrá hné, og smá sár ,,,,

já humm ég ætti víst að vera að læra þannig að best að halda áfram

samhryggist öllum sem eru í prófum og öfunda alla sem eru búnir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 18:51:28 / kryr

játningar

sko,, ég hef nú alltaf verið frekar morgunsvæf,, finnst voða gott að sofa,,sérstaklega á morgnann,, ég vil vaka lengi á kvöldin og vakna helst ekki fyrr en rétt eftir hádegi,, það er ekki alltaf í boði,, og hefur maður þurft að vinna á því,, en því fylgir ótrúleg morgunfíla,, já ég er ekki besta manneskjan til að vakna með á morgnanna, ég vil helst ekki bjóða góðann daginn, helst ekki horfa á fólk, og helst ekki vera til bara. En undur og stórmerki hafa gerst seinustu daga og er ég svo forviða að ég bara má til að tjá mig um það ,,,, ég vakna útsofni og spræk fjórum mínutum áður en klukkan hringjur ! hvað er það ? og bara í hinu blíðasta skapi og ekkert nema elskuleg heitin,,, og það sem meira er ,,, fer ekki aftur að sofa eftir að Eysteinn er farinn í skólann,,,,

Þó svo að stress og kvíði hrjái mig með ógurlega þessa dagana,, þá sef ég samt á nóttunnu ,, meiri segja komin nokkuð snemma upp í rúm,,, eða svona rétt upp úr miðnætti,,,, en já svo bara vakna ég og fer að læra,,,,,,,, Ég hef hins vegar velt því fyrir mér hvort þetta sé samviskan sem er að aðstoða mig í prófunum og láta mig vakna svona spræka svo ég geti lært á daginn,,, sem er töluvert betra en að gera það á kvöldin,,, ég ætla að halda mig við þá kenningu,,, sé framm á að ég verði eins og rotuð belja um þar næstu helgi þegar prófin eru búin

Er búin að sitja í dag og reikna og reikna og senda stærðfræðikennaranum mínum póst með hvers kynns fyrirspurnum reglulega í dag ,, held hann sé að verða þeryttur á mér,,,, en af því sem viðrist hefur hann fulla trú á mér ,, þ.e að ég nái prófunum,,, held hann segi það svo ég halda að ég geti náð og þar af leiðani aukið líkurnar á að ná og þar af leiðandi þarf hann ekki að kenna mér afur næsta vetur,,, ! ég er ekkert sérlega skemmtilegur nemandi get ég nefnilega sagt ykkur,,,, alla vega ekki fyrir kennara sem nenna bara að útskýra einu sinni,,,,

Eysteinn er að fara til pabba síns á morgun,,, kemur heim á mánudag ,, eftir stærðfræðiprófið ,, heppin hann held ég bara ,, verð ekkert skemmtileg um hlegina. En fer víst í eitt afmæli þar sem hann Hafliði verður þrítugur,,,, og mun ég gæða mér á veitningum milli 3 og 6..... maður verður að næra sig í miðjum prófum,,,,,, en já hitt er annað mál að ég átti að ég hélt að mæta til læknis í dag ,,, en það er ekki fyrr en á morgun ! sniðug ég ,,, svona verður maður vitlaus í stressinum gleymir öllu og man ekki neitt og þykist svo læra eitthvað,,,, hvað um það ,,,,  er búin að gera allar hugsanlegar hausaæfingar til að róa mig niður og er eiginlega ekki mikið stressuð núna,,,,, það eru víst nefnilega bara tveir möguleikar varðandi próf ,, annað hvort fellur maður eða maður nær,,,, ef ég næ þá get ég verið glöð og ánægð og haldi upp á það ef ég fell,,,,, þá get hugsað um það eftir prófin hvernig ég ætla að bregðast við því ,,,,,, svo ef ég næ ,, þá eru líka tveir möguleika í boði,,, ég fæ ógeðslega góða einkunn sem ég er geðveikt glöð með eða ég fæ shitt -sæmilega einkunn og get verið svoltið fúl en samt ánægð af því ég náði hvort sem er ,,,, og ef ég fell ,, þá er bara eitt í boði taka helvítis áfangann í rassg.... næsta vetur og rústa honum þá með toppeinkun ! ,,,,,, þannig það er bara eins gott að ná þó það sé rétt yfir  fimmuna,, því yfirleitt lærir maður meira en það sem prófin segja til um ,,,, það er alla vega mín skoðun ,,,,,

HINS VEGAR varðandi próf þá verð ég bara að segja ég er á móti prófum,,,, próf segja eiginlega ekkert til um hvað maður er búin að læra,, því sumir læra utanaf og muna svo ekkert daginn eftir póf,,, mér finnst að frammistaða í tímum og verkefni og ritgerðir eigi að gilda meira,,,,, en enn og aftur það er bara mín skoðun,,,,,

best að snú sér að stærðfræðinni aftur........................ bið að heylsa ,,,,  


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 15:55:57 / kryr

jabb og yess yess

Þannig er það nú ,,,,, ég fór sem sagt í íslenskupróf í gær, búin að læra rosalega mikið og var bara órtúlega róleg og fór snemma að sofa daginn fyrir próf ,, og taldi mig hafa unnið góðan sigur á móti kvíðaköstum ,, en hvaða hvaða , , klukkann fimm um morguninn vakna ég og vægast sagt hljóp sofandi á klósettir og lá þar og ældi eins og múkki í dágóðann tíma,,,, gat ekki sofnað meira,,,, paranojan að drepa mig og alveg sama hvað ég gerði þá skánaði hún ekki ,, þannig ég reif upp bækurnar ,,, og fékk flog shitt shitt ég var búin að gleyma þessu og þessu og bíddu hver var þetta og ó shitt hvað þýðir þetta,,,, reikti næstum pakka af sígarettum til að verða 10 kláraði tvo tyggjópakka og er nú með bit sár í munninum,,, reyndi að borða hinar ýmsu tegundir af mat serjós brauð .. ristað brauð,,,te,, vatn,, pera,, oallt skilaði það sér ómellt og í bitum í klósettið,,, svo mæti ég upp í skóla og er við það að fara að grenja af stressi þegar það eru tíu mínútur í próf,,,, þá hitti ég Vilborgu sem gaf mér stórt knús og sagði að ég væri búin að vera svo dugleg að læra að það væri ekki séns að við myndum ekki ná ,,,,, prófið alveg að byrja,,, ég rík inn og gott betur en það af einstakri snilld og óheppni ,,, týndi ég mér í skólanum ,,, fór inn um vitlauar hurðir og þurfti að hlaupa upp tvær hæðir til að ná prófinu,,, ok ,, var seinust inn í stofuna og var næstum með tárin í augunum,,,,, var alveg viss um að ég myndi fríka út,,,, skrifaði nafnið mitt og kennitölu ,,sýndi skilríki,,, opnaði prófið,,, gerði blaðsíðu eitt og alveg til blaðsíðu 9 þá var prófið búið ,,,, og ég geðveikt klár vissi næstum bara alveg allt nema einhvern hænsnaskít,,,,, fékk ekki tíu en veit ég verð yfir níuna,,, var rosalega montin og glöð þegar ég kom út og hringdi strax í mömmu til að hreikja sjálfri mér,,,,,,,,,,,,,,, Svo leið dagurinn og ég átti að fara í enskupróf ,,, sem sagt í dag ,,, og mín svaf til næstum 8 í morgun og Eysteinn líka ,,, ekkert stressuð ,,,, alveg með þetta á hreinu ,,, búin að lesa allt sem ég átti að lesa og vissi að ég væri nú ekki að fara læra eitthvað nýtt í málfræði ,,,,,, fór í prófið,,, lítið stressuð ,,,, En ó mæ god,,,, eins gott að ég var með lengri próftíma ,, því prófið var svívirðislegt,,, já svaðalegt var það ,,, og erfitt ,, ,hef sjaldan séð jafn mikið af sktifuðum texta á ævinni ,, á 9 blaðsíðum ,,,, en það gekk ágætlega held ég bara ,,,, alvega náði ég því alveg,, en örugglega ekki með níu,,,,,,,,,,,,,,,, Fór svo og náði í Eystein snemma í dag og við keyptum skó á hann,,,, ég að reyna að vera góð mamma og bæta upp geðvonskuköstin sem hafa dunið yfir heimilisfólk vini og vandamenn,,,,,,,,, en já nú er sem sagt frídagur,,,,,, en ekki tekur betra við því það eru 4 próf í næstu viku og mikið að læra ,,,,,, stend á shittlínunni og fer til læknis á morgun að fá ógleðisstillandi ,,,,,,, gaman af því ,,,,, og láta mæla blóðþrýstinginn og svo á víst að reka mig í krabbameinsskoðun ,,,, annars fæ ég ekki lyfseðil fyrir pilluna hjá fröken lækni með óléttuparanojuna ....þ.e hún er ólétt og fannst lifnaðarhættir mínir ógna mannkyninu þar sem ég er á pilluni reyki drekk og hef ekki farið í krabbameinsskoðun og var undrandi á því að sjúklingur með kvíðaröskun í miðjum lokaprófum væri með of háan blóðþrýsting,,,,,,  en já nó um það læknaferð á morgun,,,,, og meira um það bara seinna.....

bið ykkur vel að lifa ljúflingar.


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 10:18:11 / kryr

1. mai bara

Bræður munu berjast

og að bönum verðast,

munu systrungar sifjum spilla;

hart er í heimi hórdómur mikill

skeggöld, skálmöld

skildir ro klofnir

vindöld, vargöld,

áður veröld steypist,

mun enginn maður öðrum þyrma

Og þannig hljómar það ,, ég er semsagt búin að liggja yfir hávamáli,völuspá, konugasögum, biskupssögum , riddarasögum og samtíðasögum í 3 daga ásamt smá félagsfræði, búin að lesa brot úr hinum ýmsu verkum , þar sem ég er í bókmenntasögu íslands framm til 1550 ,,, en mér finnst það bara gaman og kvíði eiginlega ekkert fyrir prófinu , en ef ég þekki mig rétt þá sofna ég klukkann fimm í nótt af kvíða og sef næstum yfir mig á morgun og rétt næ að mæta í prófið,,, en ja sem sagt íslensku prófið er á morgun og enskan á miðvikudag. Eysteinn situr núna við barnaefnið meðan ég les og glósa og reini að gera eitthvað gáfulegt,, Anna María kemur svo eftir hádegi og við ætlum að fara yfir tvö próf og athuga hæfni okkar,, sem ég tel vera með yfirburðum að sjálfsögðu,,, best að halda egóinu framm yfir næstu helgi !

En alla vega er ég ekki búin að gera neitt um helgina nema lesa og horfa á sjónvarpið drekka einn bjór og fara ótrúlega snemma að sofa,, eithvað annað er hægt að segja um bróðir minn sem er í fríhelgi ! Sat með Vilborgu niðrí kringlu í gær og við lásum og lásum frá 1 til að verða 6 voða duglegar, tuggðum marga pakka af tyggjói og drukkum margalítra af kóki,,,,, enda var orðið erfitt að sitja um 6 leitið þegar það var verið að loka og við reknar heim...

Eysteinn var voða kátur að koma heim en var búin að vera í fjósinu meira en minna alla helgina , auk þess að sinna ný fæddum kanínu ungum ,,, en hann hlakkar til að fara næstu helgi og vera í fjósinu með Þóru frænku sinni,, en þar er hann víst flestum stundum að mér skilst. og yfirleitt kemur lyktin með honum heim.:lol:

hummm er að tefja það að halda áfram að læra með að skrifa ógagnlegar upplýsingar en ætli ég verði ekki að snú mér aftur að orðskýringum og Þorlákssögu helga og Ragnari loðbrók !

gleðilega 1 mai til þeirra sem honum fagna :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 20:37:25 / kryr

Frelsarinn

Já fimmtudagurinn var skemmtilegur í skólanum, þó gleymdi ég að minnast á að það varð reyndar slys þegar einn hoppukastalinn féll og nokkrir krakkar með ,, og löggan mætti á svæðið ,, en það gerði daginn bara fyndnari þar sem enginn alvarleg slys uðrr,,, en alla vega þá rann föstudagurinn upp, bara einn tími til að fara í og var það Félagsfræði,, sem var í sjálfusér mjög gaman, og til að byrja söguna ætla ég að taka framm að ég er eini nemandin í bekknum sem ekki hef verið hjá honum Hannesi félagsfræðikennara í tíma áður,,,, alla vega þá var tímin að verða búin og kennarinn segir þið megið pakka saman, ég byrjaði í óða önn að pakka saman þar til ég tók eftit að ég var eini nemandin sem var að pakka saman , ég leit á Vilborgu og Björk til skiptis og þær brostu bara og horfðu framm fyrir sig ,,, ég skildi ekki neitt ,, þá sagði Anna , ætlari ekki drífa þig ,,, Ég var farin að halda að það væri eitthvað samsæri gegn mér í skólanum þar til kennarinn tekur til máls og segir " Fyirir þá sem ekki vita eða muna þá er það skylda seinasta skólandaginn að sá sem fer fystur út úr stofunni kyssir mig bless og enginn fer fyrr en einhver gefur sig framm"  Ó ,, er það þannig ,,,, enginn leit út fyrir að ætla að hreifa sig ,, og þar sem þetta var seinasti tíminn minn og ég komin í "sumar/upplestrafrí" þá káraði ég að pakka og smellti kossi á kinn kennarans og þakkaði honum fyrir veturinn, kennarinn þakkaði mér fyrir einstakt hugrekki og kjark, allir pökkuðu saman og fóru út. Já ég var hugrökk ,, skólinn kennir manni margt , og hefur félagshæfni mín tekið ótrúlegum framförum.:haha: svo ég tali nú ekki um að ég er viss um að ég nái félagsfræðiprófinu fyrir þennan koss minn :haha:............. En já þetta var sem sagt seinasti tíminn minn og um leið og hann kláraðis hófst dimmiteringin hjá útskriftarnemum,,,, sem voru í sjóræningabúningum,,, Reyndar vorum við ekki viss þegar við sáum stelpurnar sem voru í búningum hvort þær væru miðalda ( ekki aldra heldur frá miðöldum) mellur,, eða sjóræningagellur það var alveg spurning,,, ........ Eftir að hafa klárað skóladaginn og horft á myndband útskiftarnema fór ég með Töru á kaffi vín og sátum við það spiluðum meðal annars,, þar hitti ég reyndar Helga Má ,, úr kelduhverfi sem ég hef nú ótrúlega langt síðan ég hef hitt,,, og tylkynnti hann mér að hann væri að fara gifta sig,,, jaherna her ..................... Við Tara fórum svo í góða hirðinn og þefuðum uppi nokkrar bækur,,, ég fór svo heim og reyndi að taka pínu til og náði í Eystein ,,, við reyndum að taka til og svo kom Alli og Jón Þór að ná í Eystein ,, ég fór og verslaði í matin og fór í BT og náði í einhverja bíómiða sem ég vann og mynd sem Þröstur bróðir vann,,, náði svo í Magga og við fórum á kaffi vín og fengum okkur að éta ,,,, fór svo heim og sturtaði mig og horfði á Hotel Rwanda,,,,,, sem er um þjóðarmorðin í Rúanda sem lauk 1994 ,,, ég verð nú að viðurkenna að hún snerti verulega viðkvæmar taugar í minni litlu sál og vottaði fyrir þó nokkrum tárum ,,, ok ekki nokkrum , gat valla verið með gleraugun á mér  ég grenjaði svo mikið,,,,, hékk svo í símanum í smá stund ,, Leó kom svo og heimsótti mig ,,, og svo fór ég í háttinn,,,, vaknaði spræk í morgun og byrjaði að læra um 10 fór svo og hitti Vilborgu niðrí Kringlu og sátum við á kaffihúsi fra 2 - 7 að læra ,,, Maggi sóttu okkur svo og hvað haldiðið að hafi verið í matinn jújú subway að sjálfsögðu,,,,, nú er ég að velta fyrir mér að fara í sturtu og skandalast eitthvað ,,,, eða horfa bara á sjónvarpið ,,, sem er mun líklegra því við Vilborg ætlum að mæta galvaskar í kringluna á cafe blue á morgun og hanga þar allann daginn og fara í taugarnar á þjónunum ,,

Alla vega þetta er nú að verða svoltið langt ,,,, bara bleeeee

bræður munu berjast,,, það er uppáhaldið mitt úr völuspá.


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 18:15:07 / kryr

2x

Já gat bara ekki setið á mér með að deila þessum degi með ykkur kæra fólk ,,,,, það var nefnilega frekar gaman í skólanum í dag ,, alveg óvenju gaman,,,, það var nefnilega eitthvað sem kallast sumarhátíð ,,, sem þýðir að það voru settir upp hoppukastalar og fleiri sprelltæki ,, grillaðar pylsur ,, vínarbrauð og kökur ,, einnig fengum við gefins sjampó frá elvital , andlitskrúbb frá nivea, dumle karmellur ,, kók í dós, twix, hjólapumpur nördagleraugu frá dælunni, boltapumpur, jójó og fleira skemmtilegt sem vasar manns fylltust af ,, einni mætti Raggi Bjarna á svæðið og tók lagið fyrir okkur ,, flass menn komu og tylkinntu ball sem þær ætluðu að halda í kvöld á brodway og einhver hljómsveit sem þar á að spila tók lagið ásamt þeim sem tóku þátt í söngvakeppninni ,,, einnig einhver ömurlegur rappari sem tók lag um hórur kókaín og nefið á sér ,,, mjög svo smekklegt ,,,,, já og klaka fengum við frá kjörís grænn hlunkur var það ,,, Ekki nó með það mætti svo í stærðfræði og var annar nemandin af tveim sem mætti ,, skoðaði prófið mitt ,,, og vitiði bara hvað ,,, kennarinn var að ´flýta sér svo mikið þegar hann fór yfir það að hann gaf mér vitlaust það vantaði nefnilega alveg tvo heila í einkunina mína þannig að í staðinn fyrir að fá 5.5 var ég komin með 7.5 ,, :haha: ég var mjög ánægð ,, mætti svo í Íslensku annar nemandin af tveim sem mætti í þann tíma líka ,, sem sagt ég og Anna og nutum við afar góðs af því og fenguð hernaðar upplýsingar fyrir prófin ,,, svo var enginn enska þannig að ég ákvað að skella mér í aukatíma í landafræði og láta útskýra fyrir mér vindakerfi jarðar og bauganetið ,, en ég er all léleg í því ,,,,,, og fékk þessar líku fínu útskýringar ,,,,, míns var glaður ,,,,, og nú er míns bara mjög glaður í skapnu í dag ,,, og já nú ætla ég bara að fara að gera eitthvað sniðugt ,,, því ég á bara einn tíma eftir í fyrramálið þ.e félagfræði og svo bara er dimmiteringin á morgun og verður sýnt myndbandi af því tilefni .................................. góða helgi ,,,

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 07:50:30 / kryr

morgunjátningar

Nú er þetta alveg að verða búið,,,, bara 4 tímar í dag og einn á morgun eftir og svo tekur prófalestur við ,,, geðheilsan hefur verið á tæpasta vaði og taugaveiklun yfirráðandi, ef ég er farin að sofa fyrir miðnætti af þreytu þá hefur nú eitthvað gengið á yfir daginn ,, og þannig er þessi viku búin að vera ásamt tilheyrandi svefntruflunum , EN ég fór og talaði við námsráðgjafann minn í gær og hún var algjört yndi, ég þarf núna ekki að taka próf í sal með hundrað öðrum heldur í sérstofu með öðrum eins taugaveikluðum og ég er , og fæ lengri próftíma , sem ég veit ekki alveg hvort ég þarf en það er gott að hafa það í bakhöndina,,,, annars þá náði ég seinasta kaflaprófinu í stærðfræði ,,, en bara réttu megin við fimmuna , en það var nó fyrir mig ,, og landafræðiprófið sem mér gekk svo agalega illa í ,, var ekki svo agalega slæmt fékk 7,8 þar ,,, og var mjög hissa , mest var ég hissa að hafa fengið 18 stig af 20 í ritgerðarspurningu sem fólst í að segja sögu íslenska kvótakerfisins ,,, já já maður kemur sjálfum sér stöðugt á óvart, ! Alla vega er langur dagur frammundan og vinnubókarskil ,, og eftir að hafa flétt í gegnum bækur í gær og skoðað allt til prófs ,, sá ég að ég var kannski ekki alveg jafn illa stödd og ég hélt,,,, þannig ég ákvað að róa mig aðeins á panicinu og vera svoltið stóísk ,,, maður lærir víst ekki mikið með panicið í afturdragi !!!!

Eysteinn fer til pabba síns um helgina og næstu helgi , þannig ég er með góðan tíma til að lesa og klára það sem ég þarf að klára,,, sem er frábært,,,, ætla að læra með Vilborgu og Önnu um helgina ,, en við erum allar saman í félagsfræði og við Anna saman í Íslensu og landafræði líka,,,, maður þarf víst að þjálfa félagshæfnina ! en nei nei þetta er frábært og nú ætla ég að fara að drulla mér af stað í skólann svo ég nái félagsfræðitímanum ,, ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 20:27:11 / kryr

einu sinni enn ....

OK ,,,, fór í landafræðiprófið á föstudag og get nú ekki dáðst að frammistöðu minni þar ,,,,, gekk ekki alveg nóu vel ,,, fékk líka einkun í stærðfræðiprófinu sem hljóðaði upp á 1.8 og eins og ég sagði um daginn , fyrsta fallið í vetur komið og hver veit nema þau verði tvö eftir helgi,,, þeim meira sem styttist í lok skólans þeim mun stressðri verð ég og prófkvíðin alveg farinn að gera vart við sig,,, fékk samt 9 í rannsóknarrtigerðinni minni um hvort tölvunotkun barna á leikskólum skilaði hæfari einstaklingum í samfélagið en já það er bara vika eftir af skólanum og svo byrja prófin sé mér lítið annað fært en að fara og útvega mér róandi svo ég tapi mér ekki og geðheilsunni endanlega ,,,,, en hvað um það ,,,,, föstufagurinn fór í tóma steypu og uppvask,,,, snemma að sofa og morgunfílan á sínum stað fór á fætur og byrjaði að baka þar sem von var á móður minni og co í kaffi,,, Sædíd kom svo í kaffi líka og komumst við að því að hvorug þorgði að hringja í hina til að fara að djamma í gær ,, vorum sannfærðar um að hvor um sig væri afskalega uppteknar. ,,,, sem reyndist svo ekki vera ,,,,,,, en já kvöldið í kvöl fer líklega í að sinna bræðrum mínum ,, Þröstur bróðir nefnilega heimtaði að gista hjá systkinum sínum,,,,,,,ætli hann fái ekki bara sófann,,,,,,

Leiðrétting;;;;;

Vegna afspurnar verð ég að leiðrétta að ungi bekkjabróðir minn sem ákvað að kyssa mig um daginn á djamminu, mér að óvörum er víst ekki 17 ára ,,,, og þarf ég ekki lengur að óttast að vera kærð af foreldrum fyrir að táldraga barn á skemmtistað borgarinnar ,, hann reindist eftir allt saman vera 21 sem er strax mun betra en 17 ,, ,,,,,, OG ég á ekki kærasta á Húsavík ,,,, það er mikill miskilningur,,,,,,,,,,

OG já held ég þurfi ekki leiðrétta fleiri skammarstrik ,,,

En auglýsi eftir sumarkærasta ;) Hvað er sumar án þess að vera ástfangin og sleikja ís ,,, en hann verður að vera eldri  en 17. ! :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 18:41:11 / kryr

Sumardagurinn fyrsti

Það mun víst vera sumardagurinn fyrsti í dag og óska ég öllum gæfuríks framhalds á komandi tíð.

Við systkynin gerðumst menningarleg ( skrifar maður systkyni svona ) og skelltum okkur á þjóðmenningarsafnið í tilefni dagsins og skoðuðum þar hina merkilegustu og furðulegustu leifar fortíðarinnar, við fórum einnig í grasagarðinn og mynduðum nokkrar gæsir og aðrar fígúrur, varð ég þeirrar miklu gæfu aðnjótandi að fá eihverskonar fiðurkvikindi fjúgandi á hausinn á mér og óttast nú fuglaflensuna :lol: En hvað um það við ætluðum í húsdýra og fjölskyldugarðin þar sem tómstundarráð bauð upp á skemmtun en vegna verulegra langrar biðraðar og mikils hungurs ákváðum við að hætta við og skelltum okkur í smáralind að eta og svo á einhverja vorsýningu , þar sáum við mjög álitlega heita potta sem mér fannst allt í eunu mjög heillandi að hafa í garðinum hjá mér ,,, svona þangað til ég sá verðið á þeim,,, einnig voru eldhús í garinn mjög áberandi en það eru sem sagt grill ,,, en vegna stærðar er ég viss um að það hafi verið eldhús. Nú svo komum við heim og ég sturtaði skítin af mér , ekki annað hægt eftir að hafa rekist utan í svona mikið að fólki,,, Nú já á morgun er föstudagur og það þýðir víst skóli ,, og ekki bara það það þýðir líka próf í landafræði,,, einhverra hluta vegna þegar ég á að vera að lesa fyrir próf þá vinn ég mig knúna til stórrframkvæmda,,, til dæmis langar mig rosalega að fara út í garð og rífa upp allt dautt og raka lauf og moka skít eða eitthvað álíka,, þrífa húsið hátt og lágt þurka af ljósum og hurðakörmum, baða kettina,, snoða Eystein fyrir sumarið, taka til í herberginu hans ,,,, eitthvað sem ég finn mig að jöfnu ekki knúna til að gera dags daglega,,, en þegar kemur að prófum já ,, þá er ég til í allt annað en að lesa ,, ég meina mér er alveg sama um sögu íslenska sjávarútvegsins og gróðurfar á íslandi frá landnámi,,, og hvernig hvirfilbyljar myndast og loft og veðurfar heimsins,,, eins gott að þetta er bara einn áfangi........ en núna finn ég mig knúna til að elda ,,, sem er til dæmis mjög sjaldgæft að mig langi til að gera ,,,, en jú það er það eða lesa og láta fólkið éta brauð á bænum ,,,,,,,,,,,

En gleðilegt sumar.


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 10:52:23 / kryr

Bjór ástir slagsmál páskaegg sofa snjóbretti

Þá er maður komin heim í hreiðrið sitt eftir stórkostlegt páskafrí sem einkenndist af mikilli bjórdrykkju á mínum mælikvarða og miklu áti já já já hummm sumt verður nú ekki fallegt á prenti svo við skulum halda okkur við fallegu hliðarnar,,,, á miðvikudaginn fórum við maggi á húsavík og gistum þar í nýja húsinu hanns , örlítið "innflutningspartý" var haldið þar sem var nú bara með mestu skemmtilegt, þó svo að ég mætti vanda orðbragð mitt við húsvíkinga í framtíðinni,, helv... MOLAR ! er víst ekki vinsælt orðatiltæki þar þegar maður gerir grín að drykkju húsvíkinga,,, en alla vega það var gaman,,, svo var haldið á kópasker í dýrindis mat hjá mömmu,, þar var mér nánast hent á ball á föstudeginum í skúlagarði sem var nú ekki fjölmennt nema húsvíkingarnir séu teknir með sem ákváði að birtast þarna af einhverjum ástæðum , þar kannaðist ég við nokkra úr partíinu,, eftir að hafa uppgvötvað að ein stelpan hefði verið í partíinu ákvað ég að spurja hana þar sem hún sat í sófanum með "hinum" húsvíkingunum hún jánkaði því og ákvað svo að kynna mig fyrir hinum húsvíkingunum sem kærasta eins annars húsvíkings ,, einhver tími fór í að leiðrétta þann miskilning,,, eftir skúlagarð var haldið heim ,, fólk í misgóðu ástandi ,, og maður búin að hitta fólk sem maður hefur ekki séð í áraraðir ,,, sumir búnir að eignast börn sem ég næstum vissi ekki af ! en já jájá fór líka á Raufarhöfn að hitta Ylfu og Einar og Helga Val ,,,,,, Fór á sjóbretti í fyrsta skipti og árangurinn var eftir því ,,, verulega blaut á rassinum ,,, borðaði ótæpilega mikið ,,, lærði frekar lítið ,,,, og nennti alls ekki heim,,,,,,,, skólinn byrjar á morgun og þá tekur hið "venjulega" líf við ,, eins venjulegt og það verður,,, en nenni bara ekki meira ,, þvotturinn býður eftir mér ,,,,,

Gleiðlega Páska allir saman,,, ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 22:29:17 / kryr

páskafrí

þá er helgin búin ,, sem var nú frekar viðburðarrík að þessu sinni,,, fór að sofa klukkan 10 á föstudagskvöldið,,,, Eysteinn sofnaði klukkan 6,,,,,, hann kvartaði undan þreytu og höfðuverk og ældi svoltið hressilega um nóttina ,,, sú ákvörðun var tekin að hann væri spenntur fyrir flugið sem hann var búin að hlakka svo til að fara í ,,, þegar kom í ljós að hann vildi als ekki fara einn í flugvél ,,, hann var slappur og sljór á laugardeginum og var mútað til að fara í flugvélina,,, með ferð í leikbæ,,, hann fór í flugvélina,,, og búið vara að lofa bíó ferð á akureyri með afa,,, hann neitaði að fara í bíó ,,,, hann var víst fárveikur þegar allt kom til als og endaði með ömmu sinni og afa á læknavaktinni á húsavík um miðnætti,,, komin með háan hita og hrottalega eyrnabólgu,,, krakki sem hefur fengið einu sinni í eyrun ,,,, alla vega ég var ekki að fíla mig sem góða mömmu ,,,, Petra var hjá mér á laugardagskvöldinu,, sem mest megnis fór í símasamband framm eftir miðnætti,,, þegar ég var orðin viss um að Eysteinn væri sofnaður og á leið í ömmuból sátum við Petra aðeins lengur og veltum fyrir okkur hvort við ættum að gera eitthvað ,, stefnan var tekin niðrí bæ og var það óskaplega skemmtileg og fórum við að hlusta Halta hóru spila sem var með eindæmum góð,,,,, tók svo félagfræðipróf á sunnudag ásamt því að tala nokkru sinnum til kópaskers að fylgjast með sjúkklingnum mínum ,,,, fór að sofa klukkan níu og svaf til 9 í morgun,,, var hin oflugasta við að taka til þegar gömul vinkona af króknum hringsi í mig og ákváðum við að hittast,, það var ótrúlega gaman,,,, enda ótrúlega mörg ár síðan við höfum hist,,, vorum mjög öflugar á saman á djamminu í gamla daga og það er mánuður og einn dagur á milli barnanna okkur,,, hún reyndar tók svo framm úr mér og eignaðist eitt í viðbót,,,,,, en allavega er hún að flytja á höfuðborgarsvæðið mér til ómældrar gleði ánægu og yndisauka ,, hlakka mjög til ..... svo kom hún Sædís mín í heimsókn ,,,, og heimsmálin og helgarmálin rædd að miklum krafti,,, þegar hún fór svo um 4 leitið var tekið hressilega á lærsómnum og er égbúin að sitja í félagsfræði,,, heil heil lengi,,,, þá var Ylfa mín svo elskuleg að hringja og ég reif nefið upp úr bókinni í dágóðan tíma,,,, við ræddum einnig mjög gáfuleg málefni á okkar mælikvarða,,,,, svo var haldið árfram að læra og skroppið íbúðina með magga að kaupa brauð sem eruppistaðan í okkar fæðu,,, ásamt morgunkorni pizzu og subway,,, sérstaklega þegar við erum bara tvö heima,,,, alla vega ákvað að halda svo áfram að læra og er einhvernveginn orðin frekar syfjuð og er að velta fyriri mér hvort hollt sé að fara að sofa,, ! búin að sofa rosalega mikið ,, kannski of mikið ,,,, en sko búin að vera dugleg læra fullt og hitta fólk ,,, það telst nú bara gott afrek á mínum mælikvarða,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,, kannski ég horfi á lost,,,, er eitthvað að ná því ,, maggi búinn að smita mig,,,, sturta jú það er mikilvægt líka  ,,,,,, læra mikið á morgun líka ,,,,,, Þetta er nú meira páskafríið...... 

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6